Harður árekstur og tvö vinnuslys í fiskvinnslum
Einn var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsi eftir harðan árekstur við Eskifjörð á laugardag. Tveir einstaklingar voru fluttir á sjúkrahús eftir sitt hvort vinnuslysið í austfirskum fiskvinnslum á föstudag.Harðar árekstur varð á móti Eskifjarðarvegar og Norðfjarðar á föstudag. Þar skullu saman tveir bílar sem komu úr gagnstæðum áttum, annar kom frá Norðfirði og beygði í átt til Eskifjarðar í veg fyrir hinn bílinn sem kom ofan af Hólmahálsi.
Ökumaður annars bílsins var einn í honum. Sá var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en ekki talinn mikið slasaður. Fjórir einstaklingar voru í hinum bílnum. Þeir fengu að fara heim eftir skoðun hjá lækni sem kom á vettvang. Bílarnir voru báðir óökufærir.
Þá urðu tvö vinnuslys í austfirskum fiskvinnslum á föstudag. Í öðru þeirra klemmdi starfsmaður hönd í færibandi. Hann var fluttur töluvert slasaður á Sjúkrahúsið á Akureyri. Hinn varð fyrir soðvatni í fiskimjölsverkmiðju og var fluttur nokkuð slasaður á sjúkrahús til aðhlynningar.
Vinnueftirliti var tilkynnt um bæði slysin og rannsakar eftirlitið tildrög þeirra ásamt lögreglunni á Austurlandi.
Mynd: Aðsend