Helgin: Sýning listnema hefst í Skaftfelli í dag
Sýning þriðja árs nema af myndlistardeild Listaháskóla Íslands, sem hafa dvalist undanfarnar tvær vikur á Seyðisfirði, hefst í dag. Sýningin er innblásin af verunni í firðinum. Tónleikar verða á Norðfirði og Stöðvarfirði um helgina.Síðustu tvær vikur hafa sextán nemendur á þriðja ári við myndlistardeild Listaháskóla Íslands dvalið á Seyðisfirði og unnið að nýjum verkum undir leiðsögn Gunnhildar Walsh Hauksdóttur. Rík hefð er fyrir slíkum heimsóknum þriðja árs nema deildarinnar til Seyðisfjarðar.
Hópurinn hefur komið víða við á þessum tveimur vikum og kynnst bænum. Nemarnir hafa meðal annars heimsótt Herðubreið, Geirahús, LungA skólann, Prentverk Seyðisfjarðar, Bræsðluna og Tækniminjasafnið.
Þá fengu þau fyrirlestur frá Rannveigu Þórhallsdóttur um fornleifauppgröftinn í firðinum og heimboð frá Pétri Kristjánssyni sem fjallaði um tilurð Seyðisfjarðar og list Dieter Roth.
Sýningin kallast „Tonn (1,22) og egg (60). Hún opnar klukkan 17:00 og er opin til 7. febrúar á opnunartíma Skaftfells.
Bony Man kemur fram í Tónspili í Neskaupstað í kvöld. Bony Man er listamannsnafn Guðlaugs Jóns Árnasonar, tónlistarkennara úr Reykjavík, sem ættaður er frá Norðfirði. Fyrsta breiðskífa hans, Cinnamon Fields, og var tilnefnd plata ársins í flokki þjóðlagatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022. Hann vinnur nú að gerð nýrrar breiðskífu og spilarí kvöld bæði nýtt og gamalt efni. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00
Þá verða á morgun haldnir pönktónleikar í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði. Fram koma DDT Skordýraeitur, Kári Kresfelder, Sárasótt, Ólöf Rún og Anja. Tónleikarnir eru á vegum Norðanpaunks, pönkhátíðar sem haldin er á Laugarbakka í Miðfirði um verslunarmannahelgina. Tónleikarnir hefjast klukkan 18:00.