Hlaupið er eins og krabbameinsmeðferð: Alltaf eitthvað mótlæti
Hlauparnir í áheitahlaupinu „Meðan fæturnir bera mig“ komu í Egilsstaði í dag í slyddu og roki. Austfirðingar hafa tekið vel á móti hópnum og hlaupið með á nokkrum köflum. Hlaupið er til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna hringinn í kringum landið.
„Hlaupið hefur verið eins og krabbameinsmeðferð, það er alltaf
eitthvert mótlæti,“ segir Signý Gunnarsdóttir, ein af forsprökkum
hópsins. „Við byrjuðum í blíðu fyrstu dagana, síðan lentum við í
öskufoki og síðan höfum við verið í kulda og roki. Í dag vorum við með
rokið í fangið allan tímann og lentum í bæði haglél og snjókomu.“
Í
dag var hlaupið frá Djúpavogi yfir Öxi til Egilsstaða. Líkt og á
Djúpavogi í gær tóku forsvarsmenn sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs á
móti hlaupurunum og færðu þeim gjafir. Hildur Bergsdóttir,
framkvæmdastýra Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands hljóp með
hópnum efri hluta Skriðdals og börn úr Ungmennafélaginu Þristi slógust í
för með hlaupurunum á kafla.
„Þetta hefur
verið mjög gaman þar sem svona vel hefur verið tekið á móti okkur, eins
og á Djúpavogi og á Hellu og í Vík hlupu leikskólabörn með okkur,“ segir
Signý.
Hugmyndina að hlaupinu má rekja til
veikinda Gunnars Hrafns Sveinssonar (Krumma) sem greindist með
bráðahvítblæði í janúar 2010. Hlaupararnir eru fjórir, móðir hans, Signý
Gunnarsdóttir, faðirinn Sveinn Benedikt Rögnvaldsson og Anna María
Rögnvaldsdóttir, systir Sveins og maður hennar, Guðmundur Guðnason.
Hlaupararnir
fóru af stað úr Reykjavík þann 2. júní síðastliðinn og hlaupa að
meðaltali tæpa 100 kílómetra að dag. Hver hlaupari hleypur að meðal
tali 8-10 km í senn.
Hver dagur er tileinkaður
einu barni sem snert hlauparana á einn eða annan hátt. Dagurinn í dag er
tileinkaður Birni Elías Þorgeirssyni en hann hitti hlauparana við
komuna í Egilsstaði. Björn Elís, er tveggja ára og greindist 18. október
2010 með Wilms æxli í nýra. Hann var mikið veikur fyrstu mánuðina en
eftir að nýrað var tekið hjá honum fór allt að fara upp á við. Hann er í
stífri lyfjameðferð fram í miðjan júní. Tengsl hans við Austurland eru
sterk, móðir hans frá Fáskrúðsfirði en alin upp á Borgarfirði eystri.
Nánari upplýsingar um hlaupið má finna á www.mfbm.is.