Héraðslistinn, 20 þátttakendur í forvali
Samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði, Héraðslistinn, efna til opins forvals, vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí næstkomandi. Forvalið fer fram dagana 25-27 mars.Kosningarétt hafa allir þeir sem eru á kjörskrá og eru orðnir 18 ára. Forvalið fer þannig fram að kjósandinn raðar frambjóðendum á lista frá 1 til 9. Seðill er gildur þó merkt sé við færri en ógildur ef merkt er við fleiri.
Forvalið verður ráðgefandi fyrir félagsfund og uppstillingarnefnd. Við endanlega uppröðun verður meðal annars tekið mið af kynjahlutfalli og búsetu.
Niðurstöður forvalsins verða birtar á vef Héraðslistans.
Þáttakendur eru:
Guðmundur Ólason | Hrólfsstöðum Jökuldal | Gefur kost á sér í forustusveit L-listans. |
Kristín María Björnsdóttir | Egilsstöðum | Ótilgreint sæti. |
Sigrún Blöndal | Egilsstöðum | Eitt af þremur efstu sætum listans. |
Þorbjörn Rúnarsson | Egilsstöðum | Ótilgreint sæti. |
Ruth Magnúsdóttir | Egilsstöðum | Frá sjötta sæti listans. |
Tjörvi Hrafnkelsson | Egilsstöðum | Fyrsta til þriðja sæti listans. |
Aðalsteinn Ásmundsson | Egilsstöðum | Ótilgreint sæti. |
Árni Ólason | Egilsstöðum | Ótilgreint sæti. |
Árni Kristinsson | Egilsstöðum | Fyrsta til fjórða sæti listans. |
Ásmundur Þórarinsson | Vífilsstöðum Hróarstungu | Ótilgreint sæti. |
Baldur Pálsson | Fellabæ | Sækist ekki eftir sæti í bæjarstjórn en vil vera öflugur bakhjarl listans. |
Guðný Drífa Snæland | Teigabóli Fellum | Sækist eftir sæti neðarlega á lista. |
Helga Hreinsdóttir | Egilsstöðum | Gef kost á mér neðarlega á lista, ekki í forystusveit. |
Ireneusz Kolodziejczyk | Fellabæ | Ótilgreint. |
Íris Randversdóttir | Egilsstöðum | Ótilgreint. |
Ragnhildur Benediktsdóttir | Egilsstöðum | Ótilgreint. |
Ragnhildur Rós Indriðadóttir | Fellabæ | Fjórða til fimmta sæti listans. |
Skúli Björnsson | Hallormsstað | Fjórða til áttunda sæti listans. |
Edda Egilsdóttir | Fellabæ | Ekki forustuliðið getur vel sér að taka þátt í nefndarstörfum. |
Þorsteinn Bergsson | Unaósi Útmannasveit | Fyrsta til annað sæti. |
Sjá nánari upplýsingar um frambjóðendur á www.heradslistinn.is.