Iðnaður er stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar

Í nýrri greiningu sem Samtök iðnaðarins vann kemur fram að iðnaður er stærsta útflutningsgrein hagkerfisins. Útflutningstekjur álfyrirtækjanna þriggja er um helmingur iðnaðarútflutningsins.

Útflutningstekjur iðnaðarframleiðslu námu 698 milljörðum króna á síðasta ári, sem er 38% af heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins. Í öðru sæti var ferðaþjónusta en útflutningstekjur vegna hennar námu 598 milljörðum, eða 32% af heildinni. Sjávarútvegur kemur í öðru sæti með 352 milljarða króna útflutningstekjur sem gerir 19%.

Af þessu námu tekjur af áli og kísiljárni 370 milljörðum. Þær drógust þó saman um hátt í 100 milljónir. Ástæða samdráttarins er verðlækkun og skerðing raforku. Sá samdráttur hefur haldið áfram í takt við skerðingu raforku á þessu ári.

Útflutningstekjur álfyrirtækjanna þriggja, RioTinto, Norðurál og Alcoa, námu 324 milljörðum króna á síðasta ári sem er ríflega 17% af heildarútflutningsverðmæti þjóðarbúsins.

„Með vexti hugverkaiðnaðar á síðustu árum hefur hluti þjónustu í heildarútflutningi iðnaðar farið vaxandi. Nam hluti þjónustu í útflutningi iðnaðar 28% árið 2023 samanborið við 14% árið 2013. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs námu útflutningstekjur hugverkaiðnaðar 86 milljörðum króna sem er 7% aukning frá sama tíma í fyrra.

Samtök iðnaðarins áætla að tekjurnar verði yfir 300 milljarðar á þessu ári. Samdráttur í útflutningstekjum áls og kísiljárns olli því að heildarútflutningstekjur iðnaðar drógust saman á milli áranna 2022 og 2023 um 75 milljarða króna eða tæplega 10%,“ segir í skýrslunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.