Jens Garðar býður sig fram í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins

Jens Garðar Helgason, aðstoðarframkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur og fyrrum bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, hefur tilkynnt að hann ætla að bjóða sig fram sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum.

Staðfest var í gær að kosið verði 30. nóvember. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður, var oddviti flokksins í kjördæminu í kosningunum 2021. Ekki hefur verið gefið út formlega hvernig verði valið á listann í kjördæminu.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum samfélagsins og trúi því að með sameiginlegu átaki getum við tryggt áframhaldandi framfarir og velferð í kjördæmi sem og landinu í heild. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið sterkt hreyfiafl íslenskra stjórnmála og þjóðlífs. Ég vill leggja mitt af mörkum í baráttu fyrir framgangi sjálfstæðisstefnunnar,“ segir í tilkynningu Jens Garðars.

Hann er 47 ára gamall, fæddur og uppalinn á Eskifirði. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1996, stundaði nám við viðskiptafræði í Háskóla Íslands frá 1997 til 2000 og hefur MBA gráðu frá Norwegian School of Economics. Jens Garðar er búsettur á Eskifirði og á þrjú börn. Eiginkona hans er Kristín Lilja Eyglóardóttir heilaskurðlæknir.

Jens Garðar hefur lengi starfað í forystu sjávarútvegsins og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sveitarstjórnarstigi. Hann var formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á árunum 2014 – 2020, varaformaður Samtaka atvinnulífsins 2017- 2020 og formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð tvö kjörtímabil. „Í störfum mínum í atvinnulífi og stjórnmálum hef ég unnið náið með fólki og veit hversu mikilvægt það er að hlusta á raddir allra og byggja brýr milli ólíkra sjónarmiða," segir hann.

„Hugmyndaauðgi, kjarkur og þor einstaklingsins er, og hefur verið, drifkraftur hagsældar Íslendinga. Það er hlutverk ríkisvaldsins að skapa umhverfi sem hvetur, en ekki letur, áframhaldandi fjárfestingar og framþróun," segir Jens Garðar.

„Í þessu starfi vil ég leiða Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi. Rödd athafnafrelsis þarf að heyrast betur. Forsenda uppbyggingar öflugs velferðarkerfis er meiri verðmætasköpun. Frjálst fólk framleiðir meira."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.