Kallar eftir aðstoð íbúa til að tryggja heilbrigðisþjónustu
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands skorar á þá íbúa fjórðungsins sem geta að skrá sig í bakvarðasveit stofnunarinnar. Þörf er á að geta kallað út fólk ef upp kemur covid-19 smit í deild innan stofnunarinnar.„Það væri algjörlega frábært ef íbúar á svæðinu væru til í að bregðast við. Eðli viðfangsefnisins er þannig að við þurfum á öllu okkar að halda,“ segir Guðjón
HSA þarf vissulega á fólki með þekkingu á heilbrigðisþjónustu að halda en stoðdeildir stofnunarinnar eru ekki síður mikilvægar svo sem ræstingar, eldhús, umönnun aldraðra og fólk með tölvu- og tækniþekkingu. „Ef upp kemur smit í lítilli þjónustudeild og sú starfsemi leggst af þá hefur það mikil áhrif inn í heilbrigðisþjónustuna,“ segir Guðjón.
Heilbrigðisþjónustan í landinu hefur undanfarna daga óskað eftir liðsinni almennings ef á þarf að halda. Yfir 30 manns hafa þegar skráð sig. „Við erum komin með nokkra hér eystra. Þessir einstaklingar skipta okkur miklu máli.“
Hægt er að skrá sig í bakvarðasveitina með að fylla út þetta skráningarform á vef HSA. „Við þurfum að geta kallað fólk til starfa með skömmum fyrirvara til að hjálpa okkur með þetta verkefni sem framundan er næstu daga og vikur.“