Kólígerlar í neysluvatni á Stöðvarfirði og í Breiðdal
Íbúar á Stöðvarfirði og í Breiðdal skulu sjóða neysluvatn sitt vegna kólígerla til að gæta fyllsta öryggis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarðabyggð.
Niðurstöður sýnatöku sem gerð var á neysluvatni staðanna staðfesta að kólígerlar séu í neysluvatninu. „Til að gæta fyllsta öryggis eru íbúar beðnir um að sjóða neysluvatn þar til orsök liggur fyrir og búið verður að koma í veg fyrir mengunina. Tekin verða ný sýni daglega,“ segir í tilkynningu frá Fjarðabyggð.
Þær upplýsingar fengust hjá sveitarfélaginu að ekki væri ljóst hvar mengunin ætti upptök sín, hvort það væri í lagnakerfi eða vatnsbólum. Verið sé að leita og vonast sé til að staðan lagist á næstu dögum. Gildin sem mælst hafi séu ekki há. Á mánudag var því beint til Breiðdælinga að sjóða vatn eftir að bráðabirgðarannsókn sýndi kólígerla í vatninu.
Nauðsynlegt er að allt neysluvatn sé soðið sem og vatn sem notað er til ísmolagerðar, til kaffilögunar, böðunar á ungabörnum o.fl. Nota má ósoðið vatn í handþvott, fyrir uppþvottavél, þrif o.fl.
„Vatnið þarf að bullsjóða. Hraðsuðuketill bullsýður vanalega vatnið þegar hann slekkur á sér og það er nægilegt. Ef notaður er örbylgjuofn verður að ganga úr skugga um að vatnið bullsjóði,“ segir í leiðbeiningum frá embætti landlæknis sem Fjarðabyggð hvetur íbúa að skoða en leiðbeiningarnar má lesa með því að smella hér: https://www.fjardabyggd.is/Media/suda-neysluvatns-leidbeiningar.pdf