Kynna framkvæmdir við snjóflóðavarnagarða í Neskaupstað

Íbúafundur verður haldinn í Neskaupstað í dag um þær framkvæmdir sem nýhafnar eru við snjóflóðavarnir undir Nes- og Bakkagiljum.

Uppistaðan í vörnunum er 730 metra langur þvergarður, um 20 metra hár. Í hann þarf um 600.000 rúmmetra af efni. Síðan bætast við tvær keiluraðir með níu keilum í efri röð og ellefu í neðri. Þær þurfa um 160.000 rúmmetra.

Þær eru síðasti áfanginn í gerð varnarmannvirkja fyrir íbúabyggðina í Neskaupstað. Gert er ráð fyrir að varnirnar verði tilbúnar haustið 2029.

Aðalverktakinn er Héraðsverk sem snemma í ágúst byrjaði að koma sér fyrir á svæðinu. Á fundinum í dag munu fulltrúra frá Ofanflóðasjóði, Ríkiseignum, Héraðsverki og Fjarðabyggð fara yfir það sem framundan er.

Íbúafundurinn verður haldinn í sal Nesskóla og hefst klukkan 17:00.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar