Landrof ógnar bújörðum og náttúruminjum við Lagarfljót
Töluvert eða mikið landrof er á fjórðungi strandlengju Lagarfljóts. Verst er ástandið á þeim jörðum sem eru næst ósum fljótsins. Bújarðir og náttúruminjar eru í hættu. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs krefur Landsvirkjun um mótvægisaðgerðir.
Þetta kemur fram í nýlegri skýrslum Landgræðslan vann fyrir Landsvirkjun og er hluti af vöktun á Lagarfljóti og Jökulsá í Fljótsdal eftir Kárahnjúkavirkjun.
Síðasta sumar var landrofið mælt frá Fljótsdalsstöð og að ósum Lagarfljóts, alls 211,5 km. Lítilsháttar rof eða ekkert var á 161 km, talsvert landrof á 36,5 km og mikið landbrot á 14 km.
Mikið rof á 3/4 jarðarinnar
Verst er ástandið á þeim jörðum sem liggja næst ósum Lagarfljóts, Húsey og Hóli og Hólshjáleigu. Samkvæmt skýrslunni er talið að töluvert eða mikið landbrot sé á 55% af strandlengju jarðarinnar. Í skýrslunni segir að „landbrot sé með allri strandlengju Húseyjar.“
Verst er ástandið í Hóli/Hólahjáleigu. Töluvert eða mikið landbrot er á 75% strandlengjunnar. Töluvert rof er á fleiri jörðum, til dæmis Rangá, Geirastöðum II, Ekru og Egilsstöðum.
Á Egilsstöðum hefur líka orðið landaukning þar sem efni hefur hlaðist upp. Heimamenn segja það hafa gerst eftir að Jökulsá á Dal var veitt yfir í Lagarfljót með virkjuninni.
Hækkun grunnvatns og meira vatn en reiknað var með
Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs í síðustu viku var því beint til Landsvirkjunar að unnin yrði áætlun um úrbætur og mótvægisaðgerðir gegn landbroti á bökkum Lagarfljóts. „Horft verði heildstætt á stöðu grunnvatns, aukið vatnsmagn og meiri straumþunga í Lagarfljóti og samspil og áhrif þessara þátta á landbrot,“ segir í bókun bæjarstjórnar.
Að mati bæjaryfirvalda er breytingin meðal annars rakinn til hærri grunnvatnsstöðu í fljótinu enda sé meira vatn í fljótinu en gert var ráð fyrir í reiknilíkönum við hönnun Kárahnjúkavirkjunar. Bújarðir og náttúruminjasvæði sem liggi undir skemmdum eru sögð sérstakt áhyggjuefni.
Í skýrslu Landgræðslunnar er ekki lagt mat á rofhraða eða ástæður rofsins. Það var utan verkefnisins.
Yfirlit af landbroti við Lagarfljót. Mynd: Landgræðslan
Yfirlit af landbroti við Lagarfljót. Mynd: Landgræðslan