Lést af völdum voðaskots við veiðar
Karlmaður á fertugsaldri lést af völdum voðaskots í morgun. Maðurinn var ásamt fleirum á gæsaveiðum á Vesturöræfum.Útkall vegna atviksins barst um klukkan átta í morgun. Sjúkralið og lögregla héldu strax á vettvang auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Í tilkynnningu lögreglu segir að atvikið sé rannsakað sem slys. Rannsókn á vettvangi er lokið en rannsókn málsins að öðru leyti heldur áfram.