Lítið meiddur eftir veltu
Ökumaður fólksbifreiðar má teljast heppinn að hafa sloppið lítið meiddur eftir út af akstur í Fjarðarheiði seinni part föstudags.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun bíllinn hafa farið út af veginum og oltið þar til hann hafnaði ofan í á.
Ökumaður var einn í bílnum og slapp lítið meiddur. Tildrög slyssins eru óljós en eru í rannsókn.
Þá rann bíll með ferðamönnum út af bílastæðinu við útsýnissvæðið norðan megin í heiðinni á laugardag. Bíllinn skemmdist lítið og var snarlega kippt upp á veginn aftur.
Þá var einhver erill hjá lögreglu í sambandi við bæjarhátíðina Ormsteiti sem haldin var á Fljótsdalshéraði um helgina.