Mikill styrkur í menningarlegu tilliti
Dýrunn Pála Skaftadóttir, formaður menningar- og safnanefndar Fjarðabyggðar, telur að ef sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps verði eftir morgundaginn verði það jákvæð viðbót við þá fjölbreyttu flóru sem Fjarðabyggð hefur uppá að bjóða í menningarlegu tilliti.„Það er mikil jákvæðni og bjartsýni gagnvart þessari sameiningu á Suðurfjörðunum og flestir hér sunnan gangna telja að þetta þétti byggðirnar og flæðið á milli staðanna. Félagsstarfið innan skólans og starfsemi félagsmiðstöðvanna mun klárlega eflast og miðjan í sveitarfélaginu verður aðeins stærri. Það getur bara verið jákvætt fyrir okkur öll,“ segir Dýrunn.
Hún segir ríka áhersla vera á þátt menningar, vísinda og ferðaþjónustu í Breiðdalsvík. Má í því sambandi nefna jarðfræði svæðisins, en þar eru menning og vísindi nýir vaxtarbroddar. Hið sama gildi um þátt sögu, málvísinda og menningartengda ferðaþjónustu.
„Það er alveg ótrúlega margt sem er í boði og bætist við þá flóru sem Fjarðabyggð getur boðið uppá. Þó að íbúafjöldinn segi til um að þarna bætist ekki margir íbúar við, þá er þarna menningarleg viðbót í mörgum hlutum eins og Jarðfræðisetrinu og Frystihúsinu sem tengist bæði hótelinu og brugghúsinu. Þar fara fram menningarlegir viðburðir fara og öflug fyrirtæki í matvælaframleiðslu sem byggja á öflugu einstaklingsframtaki.
Það má ekki gleymast í öllu tali um opinberar stofnanir og þjónustuskyldur sveitarfélaga að það er alltaf mikill akkur að því að fá öfluga einstaklinga til að vinna í þágu heildarinnar.
Við í Fjarðabyggð munum örugglega njóta mikils góðs af því frumkvæði og krafti sem býr í bæjarfélaginu og eins mun Breiðdalshreppur vonandi njóta góðs af sterkum innviðum og vel mótuðu og faglegu starfi í öflugu sveitarfélagi eins og Fjarðabyggð er fyrir.“
Úr umfjöllun Austurlands um kosningar um sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps, birt með leyfi ritstjóra Austurlands, Arnaldar Mána Finnssonar