Mikill viðsnúningur í rekstri Loðnuvinnslunnar

Góður viðsnúnigur varð á rekstri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, uppá 850 miljónir króna, til betri vegar á síðasta ári. Loðnuvinnslan tók líka á móti 15.000 tonnum af loðnu í vetur. Fryst voru 1100 tonn og skorin 1430 tonn af hrognum, restin brædd.

 

 

solsetur_faskrudsfjordur.jpgHagnaður af rekstri Loðnuvinnslunnar h/f á Fáskrúðsfirði árið 2009 nam 223 milljónum króna eftir skatta, en árið 2008 varð tap á rekstri félagsins upp á 620 milljónir króna, sem fyrst og fremst var tilkomið vegna gengistaps á erlendum lánum sem orsakaðist af hruni íslensku krónunnar. Það er viðsnúningur upp á rúmar 850 miljónir króna.
Rekstrartekjur félagsins að frádregnum eigin afla voru 2.898 milljónir króna og lækkuðu um 985 milljónir króna miðað við fyrra ár. Tekjuminnkunina má einkum rekja til þess að mun minna barst af kolmunna, síld og loðnu til félagsins en árið 2008.


Hagnaður án afskrifta og fjármagnskostnaðar (ebitda) var 680 milljónir króna, sem er 23,5% af tekjum, en árið 2008 var ebitda 1.067 milljónir króna sem var 27,5% af tekjum. Veltufé frá rekstri er 545 millónir króna, sem er 19% af tekjum, en var 540 milljónir króna eða 14% árið 2008. Afskriftir voru 199,4 milljónir króna, sem er svipað og árið 2008.


Eigið fé félagsins í árslok var 1.208 milljónir króna sem er 35,5% af niðurstöðu efnahagsreiknings, samanborið við 996 milljónir króna og 27% eiginfjárhlutfall árið 2008. Eigið fé Loðnuvinnslunnar hækkaði um 21% samanborið við fyrra ár og var arðsemi eigin fjár 18,4%. Nettó skuldir félagsins voru í árslok 1.440 milljónir króna og höfðu lækkað um kr. 400 millj. frá fyrra ári.


Hlutafé Loðnuvinnslunnar er 700 milljónir króna og voru hluthafar í árslok 185 . Stærsti hluthafinn er Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með 82,83% eignarhlut, en 10 stærstu hluthafarnir eiga samtals 97,8% hlutafjárins. Gengi hlutabréfa í árslok 2009 var 3,1.


Aðalfundur Loðnuvinnslunnar h/f var haldinn 9. apríl síðastliðinn og samþykkti fundurinn að greiða hluthöfum 5% arð, samtals 35 millj. króna.


Stjórn Loðnuvinnslunnar h/f var öll endurkjörin, hana skipa: Friðrik Guðmundsson, formaður, Lars Gunnarsson, varaformaður, Steinn Jónasson, ritari, Elínóra Guðjónsdóttir og Elvar Óskarsson. Varamenn: Jóhannes Sigurðsson og Björn Þorsteinsson.
Framkvæmdastjóri er Gísli Jónatansson.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.