Minningarstund í Norðfjarðarkirkju í kvöld

Minningarstund verður haldin í Norðfjarðarkirkju í kvöld. Áfallamiðstöð er áfram opin í félagsheimilinu Egilsbúð meðan samfélagið vinnur úr sviplegum atburðum síðustu viku.

Vika er í dag síðan fjölskyldufaðir á fertugu fórst af voðaskoti á Vesturöræfum. Á fimmtudag fundust hjón á áttræðisaldri látin í heimahúsi. Einn er í haldi grunaður um að vera valdur að andláti þeirra.

Minningarstund verður haldin í Norðfjarðarkirkju klukkan 18:00 í kvöld. Eftir athöfnina verður áfallamiðstöðin í Egilsbúð opnuð. Þar getur fólk komið til að fá samtal og sálrænan stuðning. Miðstöðin verður einnig opin frá 16-19 á morgun.

Þess utan er bent á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, sem er opinn allar sólarhringinn. Einnig er hægt að fá samband við geðheilbrigðisteymi HSA með því að senda póst á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., hafa samband við presta í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hafa samband við félagsþjónustu Fjarðabyggðar í síma 470 9000 eða með því að senda póst á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar