Ánægjulegir dagar að baki
Sigrún Blöndal, oddviti Héraðslistans, segir ánægjulega kosningabaráttu að baki hjá framboðinu þar sem víða hafi verið komið við. Hún segir margt spennandi að gerast á Fljótsdalshéraði og íbúar séu „býsna bjartsýnir þrátt fyrir erfiða tíma.“ Skólamál brenna á fólki.
„Það skiptir mjög miklu máli fyrir starfið í skólunum að nemendur og starfsfólk búið við öryggi. Við munum standa þétt við bakið á öllum skólum á svæðinu enda er það mikilvægt byggðamál að leggja ekki niður skóla.“
Hún segir að úrslit kosninganna í dag skipti miklu máli fyrir næstu ár í sveitarfélaginu því verðandi bæjarfulltrúar verði að átta sig á ábyrgð sinni og taki á fjármálum sveitarfélagsins af festu.