Niðurskurður HSA: Raunsparnaðurinn innan við sjötíu milljónir
Raunsparnaður á niðurskurði til framlaga til Heilbrigðisstofnunar Austurlands verður aðeins tæpar sjötíu milljónir. Hætt er við óafturkræfum og neikvæðum þjóðhagslegum áhrifum gangi hugmyndirnar eftir. Þetta kemur fram í skýrslu sem Capacent vann fyrir Fjarðabyggð. Hún var kynnt fyrir heilbrigðisráðherra í dag og verður kynnt á íbúafundi í Neskaupstað á morgun.
Í skýrslunni kemur fram að sparnaður ríkisins vegna 23% niðurskurðar til Heilbrigðisstofnunar Austurlands, HSA, sem á samkvæmt fjárlagafrumvarpinu að verða 466,8 milljónir króna, verður í raun 68,2 milljónir króna. Megin ástæða þessa er að þjónusta sem annars hefði verið veitt hjá HSA færist til annarra heilbrigðisstofnana og kostnaður við flutning sjúklinga eykst.
Í skýrslunni er fjallað um neikvæð afleidd áhrif á íbúa, sveitarfélög og fyrirtæki. Afleidd áhrif af lækkun fjárveitinga til HSA eru til þess fallin að veikja þá grunngerð og þá innviði sem stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulífið hafa byggt upp á Austurlandi á liðnum árum. Þá kemur fram að með lækkuninni sé verið að tefla í tvísýnu öryggi einstaklinga sem vinna áhættusöm störf á Austurlandi.
Niðurskurður af þessari stærðargráðu hefur víðtæk og alvarleg áhrif á samfélagið, rekstur sveitarfélagsins og á þá fjölmörgu heilbrigðisstarfsmenn sem munu að óbreyttu flytja frá svæðinu með fjölskyldur sínar. Afleidd áhrif fyrirhugaðs niðurskurðar eru skert búsetuskilyrði á Austurlandi og hætt er við óafturkræfum og neikvæðum þjóðhagslegum áhrifum.
Skýrslan er unnin að ósk bæjaryfirvalda í Fjarðabyggð en eftirtalin fyrirtæki í Fjarðabyggð fjármögnuðu gerð hennar: Alcoa Fjarðaál, Síldarvinnslan hf., Loðnuvinnslan hf., Eskja hf., Launafl ehf. og Vélaverkstæði Hjalta ehf.
Íbúafundur hefur verið boðaður í Egilsbúð í Neskaupstað klukkan 17:00 á morgun, föstudag, þar sem niðurstöður skýrslunnar verða kynntar fyrir íbúum Fjarðabyggðar.