Nýr framkvæmdastjóri ráðinn til UÍA
Stjórn UÍA auglýsti eftir framkvæmdastjóra nú á dögunum. Alls bárust 8umsóknir og tók stjórn UÍA þá ákvörðun að ráð Hildi Bergsdóttur í starfið. Hildur er 32 ára gömul og hefur að undanförnu starfað sem félagsráðgjafi
hjá Fljótsdalshéraði. Hildur hefur mikinn og góðan bakgrunn í æskulýðs
og íþróttastarfi, hefur t.a.m. starfað mikið fyrir ungmennafélagið
Þrist, bæði sem þjálfari og nú síðast til langs tíma sem formaður
félagsins. Hildur tekur við starfinu af Stefáni Boga Sveinssyni sem
hverfur til annarra starfa en mun sinna verkefnum fyrir UÍA í það
minnsta fram á haustið.
Þá hefur stjórn UÍA ákveðið að ráða Gunnar Gunnarsson ritara UÍA til
starfa á skrifstofu sambandsins í sumar. Mun hann ásamt fráfarandi og
nýráðnum framkvæmdastjóra sinna verkefnum sumarsins en nýráðinn
framkvæmdastjóri tekur síðan að fullu til starfa með haustinu.