Óbreytt staða eftir nóttina
Engin tíðindi hafa borist af ofanflóðum á Austfjörðum í nótt. Úrkoma síðustu klukkutíma virðist mest hafa fallið sem slydda á láglendi.Samkvæmt upplýsingum frá ofanflóðadeild Veðurstofunnar eru engin teljandi tíðindi eftir nóttina. Þar fylgjast sérfræðingar með mælitækjum en eystra er snjóathugunarfólk að búa sig út til að skoða aðstæður.
Mesta úrkoma á landinu það sem af er degi er á Fáskrúðsfirði, um 18 mm en tæplega 14 mm á Eskifirði og rúmlega 10 á Teigarhorni í Berufirði.
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar virðast slyddumörk neðarlega þannig snjó er ekki farið að taka upp sem er hagstætt gagnvart krapaflóðum. Von er á að síðar í dag hlýni í veðri.
Vegum á svæðinu var í gærkvöldi lokað vegna hættu á skriðuföllum. Er þar meðal annars um að ræða vegina um Fagradal, frá Norðfjarðargöngum til Neskaupstaðar og leiðinni allri frá Reyðarfirði að Höfn. Þá eru vegirnir um Vatnsskarð og Fjarðarheiði lokaðir og á óvissustigi.
Appelsínugul viðvörun er í gildi á norðanverðum Austfjörðum til miðnættis vegna snjókomu sem leitt gæti til snjóflóða. Klukkan þrjú bætist við viðvörun vegna asahláku og krapaflóða sem fyrst skapast hætta á á sunnanverðum Austfjörðum.
Mynd: Landsbjörg