Ömurleg umgengni um almenningsklósett á Djúpavogi
Undanfarið hefur verið mjög slæm umgengni á almenningsklósettunum í Faktorshúsinu á Djúpavogi. Forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar segir umgengnina ömurlega og að þetta verði að stöðva.„Við höfðum ÁÐUR orðið varir við slæma umgengni krakka og unglinga um almenningsklósettið en aldrei eins slæma og fyrir helgina,“ segir Sigurbjörn. „Því setti ég færslu inn á vef Djúpavogs þar sem ég hvatti foreldra til að taka í taumana.“
Í fyrrgreindri fræslu segir: „Sprautað er sápu yfir alla veggi, pappír tættur og útum öll gólf. Troðið hefur verið matvælum í yfirfallsgötin á vöskunum og mulin matvæli í peningakassann. Gengið er ofan á öllu sem hægt er að ganga á og sporað út.“
Síðan segir Sigurbjörn í færslunni: „Svona sóðaskapur og skemmdarfýsn er til háborinnar skammar og bið ég foreldra að ræða alvarlega við börnin sín um umgengni og framkomu hluta í eigu sveitarfélagsins.“