Opinn fundur hjá Hafró
Hafrannsóknastofnunin boðar til opins fundar um veiðiráðgjöf komandi fiskveiðiárs og starfsemi stofnunarinnar á Mjóeyri (Randulffssjóhúsi), Eskifirði, laugardaginn 16. júní kl. 14:00. Jóhann Sigurjónsson ásamt sérfræðingum mun kynna nýútkomna skýrslu stofnunarinnar. Að erindum loknum verður opnað fyrir almennar umræður. Allir velkomnir og heitt á könnunni.