Orrustuþotur innan heimilda
Utanríkisráðuneytið segir að farið hafi verið eftir öllum reglum þegar orrustuþotur flugu Reyðarfirði á miðvikudag. Reyðfirðingar urðu fyrir nokkrum óþægindum af fluginu.Orrustuþoturnar vöktu athygli Reyðfirðinga, annars vegar fyrir þann hávaða sem fylgdi þeim hins vegar fyrir hversu lágt þær þóttu fljúga – sem magnaði enn frekar hávaðann.
Í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Austurfréttar kemur fram að á ferðinni hafi verið ítalskar orrustuþotur sem eru staddar á landinu vegna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins.
Þær hafa verið eystra af og til við að kanna aðflug að flugvellinum á Egilsstöðum, sem er skilgreindur er sem varaflugvöllur.
Í svarinu segir að þoturnar hafi verið yfir tilskilinni lágmarksflughæð og flug þeirra hafi að öllu leyti verið eftir reglum og þær verið í yfir 5000 feta hæð. Þá bárust Landhelgisgæslunni ekki kvartanir vegna flugsins.