Pósturinn ekki lengur til Reykjavíkur og til baka
Breyting hefur verið gerð á starfsemi Íslandspósts Nú fer ekki lengur allur póstur til Reykjavíkur í flokkun heldur er sá póstur sem senda á innan Austurlands flokkaður á svæðinu.„Þetta er gert til að koma til móts við viðskiptavini okkar. Þeir hafa ítrekað verið duglegir að benda okkur á þetta og því hefur þetta verið til umræðu hér innan fyrirtækisins í ákveðinn tíma. Við ákváðum síðan hafa fara í þessar breytingar fyrir stuttu,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, talsmaður Íslandspósts.
Þetta verklag verður viðhaft um allt land þannig að allur póstur sem á að fara innan hvers svæðis verður flokkaður á viðkomandi stað. „Þetta minnkar póstinn sem fer til Reykjavíkur og mun væntanlega stytta afhendingartíma í sumum tilvikum,“ segir hann.
Brynjar tekur fram að þessi breyting hafi þegar tekið gildi. „Þetta er í raun bara aukaverkefni sem bætist við á hvert svæði. Við þurfum ekki að ráða inn viðbótarstarfsfólk til að sinna þessu,“ segir hann að lokum.