Skip to main content

Póstkosning hjá VG

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 29. okt 2012 18:55Uppfært 08. jan 2016 19:23

vg_logo.jpg
Kjördæmisráð Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi hefur samþykkt að efna til forvals fyrir alþingiskosningarnar 2013. 

Kosið verður póstkosningu í sex efstu sætin þann 10. desember. Framboðsfrestur rennur út 19. nóvember og skal tilkynna framboð til kjörstjórnar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Í yfirlýsingu frá kjörstjórn eru félagsmenn hvattir til að gefa kost á sér í forvalið.