Ráðherra heitir að gera það sem hægt er til að manna heilbrigðisþjónustuna
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að á næstu dögum muni líta dagsins ljós stefnumörkun sem að hluta nýtist til að bregðast við erfiðleikum í mönnun heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Bundnar eru vonir við fjarheilbrigðisþjónustu þar sem illa gengur að manna stöður.Þetta kemur fram í svari ráðherra við fyrirspurn Austurfréttar sem send var í framhaldi frétta af erfiðleika við að fá lækna til starfa á Seyðisfirði þegar sá læknir sem allajafna býr þar er í fríi. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur óskað eftir því að ráðherra komi austur til að ræða stöðuna.
Í svarinu bendir ráðherrann á að í ráðuneytinu sé nú unnið að stefnumörkum um heilbrigðisþjónustu fram til ársins 2030. Þar verði meðal annars tekið á mönnunarmálum á heilbrigðisstofnunum og einnig fjarheilbrigðisþjónustu sem jafna muni aðgengi að þjónustu sem ekki gangi að manna.
Á næstu dögum skili starfshópur um fjarheilbrigðisþjónustu ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Eitt af því sem unnið er að af hálfu ráðuneytisins í samvinnu við Landspítalann, Sjúkrahúsið á Akureyri og heilbrigðisstofnanir um allt land er að móta skipulag sem ætlað er að tryggja betur þjónustu sérgreinalækna á landsbyggðinni.
Erfiðleikar við að manna stöður í heilbrigðisþjónustunni eru þó alls ekki bundnar við Seyðisfjörð eða Austurland heldur gætir þeirra víða á landsbyggðinni.“
„Víða á landsbyggðinni er erfiðleikum háð að manna stöður lækna með einstaklingum sem vilja búsetja sig í viðkomandi byggðarlagi,“ segir í svari Svandísar.
Í frétt Austurfréttar/Austurgluggans var haft eftir Pétri Heimissyni, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, að vilji væri til að halda uppi þjónustunni á Seyðisfirði en víða væri erfitt að fá lækna til fastra starfa á landsbyggðinni.
Ráðherra heitir því þó að gera það sem hægt er til að styðja við heilbrigðisstofnanirnar. „Ráðuneytið mun gera allt sem í þess valdi stendur til að auðvelda mönnun heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni en eftir stendur að það er ábyrgð og hlutverk heilbrigðisstofnananna sjálfra að tryggja mönnun og veitingu þjónustu innan sinnar lögsögu.“