Rafiðnaðarsamband Íslands veitir myndalega styrki
Rafiðnaðarsamband Íslands hélt Sambandsstjórnarfund sinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum, síðasta fimmtudag og föstudag 6. og 7 mai. Í tilefni fundarins úthlutaði styrktarsjóður félagsins myndalegum fjárstyrkjum til góðgerðamála sem alls námu einni miljón króna.Hæsta styrkinn 500 þúsund hlaut Íþróttafélagið Örvar á Fljótsdalshéraði. Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins á Norðfirði hlutu 250 þúsund. Áhugahópur um kaup á hjartastuðtæki fyrir fjölnotasalina í Brúarási, Fellabæ og Hallormsstað hlaut 250 þúsund.
Heimasíða Rafiðnaðarsambands Íslands, RSÍ.