Rafmagnslaust á öllu Austurlandi

Rafmagn fór af svæðinu frá Vopnafirði til Hafnar í Hornafirði rétt upp úr klukkan tíu í morgun.

Útleysing varð á Fljótsdalslínu sem liggur frá Fljótsdalsstöð yfir Hallormsstaðarháls í tengivirki í Hryggstekk í Skriðdal. Reynt hefur verið að setja línuna inn aftur en ekki tekist samkvæmt upplýsingum frá Landsneti.

Enn hefur bætt í vind á Austurlandi. Hviða upp á 49 m/s hefur mælst í Hamarsfirði. Þá mældist 38,5 m/s meðalvindhraði á Vatnsskarði á tíunda tímanum.



Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar