„Reikna fastlega með að við tökum þátt að ári liðnu“

Átta vopnfirsk ungmenni útskrifuðust úr Sjávarútvegsskóla Austurlands nýverið, en vinnuskóli sveitarfélagsins var samstarfsaðili í verkefninu.



Verkefnið er samstarfsverkefni milli Háskólans á Akureyri og sex sjávarútvegsfyrirtækja á Austurlandi - HB Granda, Gullbergs, Síldarvinnslunnar, Eskju, Loðnuvinnslunnar og Skinneyjar-Þinganess. Skólinn er starfrækur á sex stöðum á Austurlandi, Vopnafirði, Seyðisfirði, Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði og á Höfn í Hornafirði.

Vinnuskólar sveitarfélagana með í samstarfinu þar sem nemendurnir sækja Sjávarútvegsskólann í viku á launum í stað þess að fara í vinnuskólann.

Skólanum er ætlað að veita nemendum í sjávarþorpum og nærliggjandi byggðum, sem eru að fara í 9. bekk, tækifæri til að kynnast einni af grundvallaratvinnugreinum Íslands. Ásamt því að kynna þeim fyrir framtíðarmöguleikum í menntun og starfi tengdum sjávarútvegi.

Áhersla er lögð á að nemendurnir kynnist störfum í sjávarútvegi sem best. Því er mikið af heimsóknum í fyrirtæki sem starfa í sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti. Meðal þess sem nemendur fræðast um er uppsjávarvinnsla, bolfiskvinnsla, framleiðsla á fiskmjöli og -lýsi, fiskiskip, netagerð, fiskmarkaðir og starfsemi og hlutverk Matís og rannsóknarstofa. Þá er farið yfir gæða- og öryggismál í sjávarútvegi.

„Reynslan af þessu framtaki var mjög góð og ég reikna því fastlega með að við tökum aftur þátt í þessu samstarfi að ári liðnu. Þá verði öllum grunnskólanemendum, sem eru að fara í 9. bekk, boðin þátttaka,“ segir Fanney Björk Friðriksdóttir, vaktformaður í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði, en hún var ein þeirra sem þátt tóku í undirbúningi og fræðslu ungmenna á Vopnafirði sem nýlega útskrifuðust úr Sjávarútvegsskólanum.

Nemendur sem luku skólanum á Vopnafirði eru: Borghildur Arnarsdóttir, Mikael Grönvold, Indía Rebekka, Heiðar Snær Ragnarsson, Benedikt Blær, Gígja Björg Höskuldsdóttir, Viktoría Hulda Þorgrímsdóttir og Ísak Aron Víðisson.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.