Ríkisstjórnin fundar á Egilsstöðum um COVID
Ríkisstjórnin mun koma saman á Egilsstöðum kl. 16 í dag til að ræða tillögur sóttvarnalæknis um takmarkanir innanlands vegna kórónuveirufaraldursins.Þetta kemur fram á mbl.is en þar segir að Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar hafi staðfest þetta í samtali við mbl.is. Á ruv.is segir að fundurinn verði haldinn í Hótel Valaskjálf.
Róbert segir nokkra ráðherra vera stadda fyrir norðan og austan en að aðrir muni fljúga austur.
Gert er ráð fyrir að allir ráðherrar verði á staðnum nema Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, sem eru staddir erlendis.
Þá segir að fjórir ráðherrar munu þurfa að fljúga austur ef allir ráðherrar sem eru á landinu mæta á fundinn.