Rýma öll hús við Botnahlíð í varúðarskyni
Ákveðið hefur verið að rýma öll hús við Botnahlíð á Seyðisfirði auk húsa við gamla Austurveg og tveggja húsa við Múlaveg og Baugsveg vegna úrkomuspár um helgina. Rýmingin gildir til sunnudags en staðan verður þá metin að nýju.Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Búið á að vera rýma húsin klukkan 22 í kvöld.
Veðurstofan gaf í gær út gula viðvörun vegna úrkomunnar sem var hækkuð í appelsínugula viðvörun seinni partinn í dag. Hún gildir frá klukkan 23 í kvöld fram til klukkan 18 á morgun. Á þeim tíma er búist við 45 mm uppsafnaðri úrkomu á Seyðisfirði.
Um kvöldmat byrjar að rigna en ákefðin eykst skömmu eftir miðnætti og stendur fram undir kvöldmat á morgun. Áfram er búist við úrkomu fram á sunnudag en mun minni.
Í tilkynningu segir að vel sé fylgst með öllum hreyfingum í hlíðinni ofan Seyðisfjarðar. Stöðugleiki þar hefur aukist eftir skriðurnar um miðjan desember en með hliðsjón af úrkomuspánni er talið rétt að rýma húsin í varúðarskyni, þar sem enn sé óvissa stöðugleika í Botnabrún og viðbrögð jarðlaga þar við mikilli rigningu.
Þar kemur ennfremur fram að reiknað sé með að rýming vegna skriðuhættu á Seyðisfirði verði lögð til á næstu vikum í ákveðnum skrefum, eftir því sem meiri reynsla fæst á stöðugleika hlíðarinnar. Sú reynsla fáist með að fylgjast með hvernig jarðlög bregðast við úrkomu í kjölfar nýafstaðinnar skriðuhrinu. Því verður í fyrstu rýmt við minni úrkomu en vænta má að verði síðar.
Fyrirkomulag við rýmingu verður eftirfarandi og mikilvægt er að allir sem yfirgefa bæinn í kjölfar beiðni um rýmingu skrái sig með eftirfarandi hætti:
Mæting í fjöldahjálparstöðina (þjónustumiðstöð) í Herðubreið ef húsnæði vantar, akstur til Egilsstaða eða aðra aðstoð. Hringið í 1717 ef þið hafið annan samastað og ætlið að fara sjálf út úr bænum eða í annað húsnæði á Seyðisfirði. Nauðsynlegt er að allir skrái sig um leið og húsnæði er rýmt.
Fjöldahjálparstöðin verður opin yfir helgina eins og þörf þykir. Þjónustumiðstöð almannavarna verður áfram opin í Herðubreið á Seyðisfirði í næstu viku en einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og hringja í 839 9931 utan opnunartíma.
Húsin sem um ræðir eru:
Öll hús við Botnahlíð
Múlavegur 37
Baugsvegur 5
Austurvegur 36, 38a, 40b, 42, 44, 44b, 46, 46b, 48, 50, 52, 54 og 56