Sameining samþykkt á Seyðisfirði
Íbúar á Seyðisfirði samþykktu í kvöld sameiningu við Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepp og Djúpavogshrepp.Á kjörskrá voru 509. Greidd atkvæði á kjörstað voru 360 sem gerir alls 70,7% kjörsókn.
Já sögðu 312 eða 86,6%. Nei sögðu 45 eða 12,5%
Auðir og ógildir: 3 eða 0,08%