Samið um kurlun og flutning fyrir kyndistöð
Skógrækt ríkisins hefur samið um kurlun og flutning viðar heim í hlöðu fyrir kyndistöðina á Hallormsstað.Fram kemur á vef Skógarorku að Skógrækt ríkisins á Hallormsstað sem er byrgir Orkuskóga ehf hefur að undangengnu útboði samið við Svein Ingimarsson skógarverktaka um kurlun og flutning hráefnisins til Kyndistöðvarinnar. Sveinn hefur yfir að ráða 190 hestafla Valtra dráttarvél sem knýr Farmi diskakurlara. Hann notar sex tonna beltagröfu með Pentin Paja grip- og klippikló til að mata kurlarann.
Kurlað er ofan í 30 rúmmetra gám sem dregin er af dráttarvélinni, sem hægt er að sturta úr ofan í hlöðuna á kyndistöðinni. Mesta flutningsvegalengd er 8 km.
,,Eitt af markmiðum Skógarorku er að ýta undir atvinnutækifæri og nýsköpun í heimabyggð og því óskum við óskum við Sveini til hamingju með samninginn og hlakkar til að taka á móti kurli frá honum", segir á vef Skógarorku.