Seinkunn á málþingi á Seyðisfirði
Upphafi geðræktarmálþings á Seyðisfirði, sem halda átti í dag, hefur verið seinkað um einn og hálfan tíma vegna tafa á flugsamgöngum.Málþingið átti að hefjast klukkan 10:00 í Herðubreið. Bæði miðdegis- og síðdegisflugi frá Reykjavík í gær var aflýst vegna veðurskilyrða. Það hefur leitt til mikilla raskana og nú í morgun er tveggja tíma seinkunn á flugi í Egilsstaði. Eftir hádegi kemur síðan aukavél vegna þeirra sem féllu niður í gærkvöldi.
Þetta þýðir að stór hluti fyrirlesara málþingsins hefur ekki enn komist austur. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum á að hefja málþingið klukkan 11:30 á léttum hádegisverði. Erindin byrja síðan eftir það.
Málþingið er haldið sérstaklega í kjölfar skriðufallanna í desember 2020. Meðal fyrirlesara eru sérfræðingar frá Veðurstofu Íslands, almannavörun, Heilbrigðisstofnun Austurland og verkfræðistofunni Eflu.
Málþingið verður líka sent beint út í gegnum miðla Múlaþings.