Sex Austfirðingar á lista Samfylkingarinnar

Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, er efst Austfirðinga á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi kosningar. Hún skipar annað sæti listans. Logi Einarsson er áfram oddviti í kjördæminu.

Framboðslistinn var samþykktur á fundi kjördæmisráðs flokksins í morgun.

„Við í Samfylkingu höldum full sjálfstrausts í kosningabaráttuna. Við erum tilbúin til þjónustu, fáum við til þess traust í kosningunum, eftir markvissa vinnu síðustu tvö árin undir styrkri forystu Kristrúnar Frostadóttur formanns,“ var haft eftir Loga á heimasíðu flokksins.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í heild sinni.


1. Logi Einarsson, alþingismaður, Akureyri
2. Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari VA, Eskifirði
3. Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur við Rannsóknarmiðstöð HA, Siglufirði
4. Sindri Kristjánsson, lögfræðingur, Akureyri
5. Stefán Þór Eysteinsson, fagstjóri hjá Matís, Neskaupstað
6. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri, Akureyri
7. Ásdís Helga Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá AFLi starfsgreinafélag, Neskaupstað
8. Jóhannes Óli Sveinsson, stuðningsfulltrúi, Akureyri
9. Eva María Ingvadóttir, aðjúnkt við HA, Akureyri
10. Benóný Valur Jakobsson, verslunarmaður, Húsavík
11. Valborg Ösp Á. Warén, verkefnastjóri, Stöðvarfirði
12. Nói Björnsson, formaður íþróttafélagsins Þórs, Akureyri
13. Elsa María Guðmundsdóttir, grunnskólakennari, Akureyri
14. Birkir Snær Guðjónsson, hafnarvörður, Fáskrúðsfirði
15. Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri, Akureyri
16. Reynir Ingi Reinhardsson, lögfræðingur, Húsavík
17. Áslaug Inga Barðadóttir, framkvæmdastjóri, Ólafsfirði
18. Árni Gunnarsson, bóndi í Sveinungsvík
19. Svanfríður Jónasdóttir, fv. bæjarstjóri og alþingismaður, Dalvík
20. Ólafur Ármannsson, framkvæmdastjóri, Vopnafirði

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar