Sex Austfirðingar á lista Pírata

Sex Austfirðingar eru á framboðslista Pírata í Norðausturkjördæmi sem staðfestur var í gær. Sævar Þór Halldórsson, landvörður á Teigarhorni, er efstur þeirra í fimmta sæti.


Kristín Amalía Atladóttir varð í fjórða sæti í prófkjörinu en afþakkaði sætið. Aðrir færðust því upp sem því nemur.

Aðrir Austfirðingar á listanum eru Stefán Víðisson, Garðar Valur Hallfreðsson, Sigurður Páll Behrend, Þorsteinn Sigurlaugsson og Unnar Erlingsson.

Tíu dagar eru síðan kjöri í prófkjörinu lauk. Kosningarétt höfðu þeir sem skráðir höfðu verið í minnst 30 daga í Pírata sem voru 260. Af þeim kusu 78 eða um 30%.

Að loknu prófkjöri var raðað í sæti 10. – 20. áður en hann var lagður fram til staðfestingar. Þar kusu 49 og 39 staðfestu listann. Þetta er fyrsti listinn sem Píratar staðfesta.

Listinn er eftirfarandi:

1. Einar Brynjólfsson
2. Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
3. Hans Jónsson
4. Gunnar Ómarsson
5. Sævar Þór Halldórsson
6. Helgi Laxdal
7. Gunnar Rafn Jónsson
8. Albert Gunnlaugsson
9. Íris Hrönn Garðarsdóttir
10. Jóhannes Guðni Halldórsson
11. Stefán Víðisson
12. Martha Elena Laxdal
13. Garðar Valur Hallfreðsson
14. Linda Björg Arnheiðardóttir
15. Þorsteinn Sigurlaugsson
16. Sólveig Ósk Guðmundsdóttir
17. Sigurður Páll Behrend
18. Hugrún Jónsdóttir
19. Unnar Erlingsson
20. Kristrún Ýr Einarsdóttir

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.