Siglt aftur yfir loðnugönguna austur af landinu

Uppsjávarveiðiskipin Polar Ammassak og Aðalsteinn Jónsson fara frá Neskaupstað og Eskifirði til afmarkaðrar loðnuleitar í kvöld. Til stendur að fá betri mælingu á loðnugöngu sem er á ferðinni úti fyrir Austfjörðum. Takmarkaðar væntingar eru um að það breyti nokkru um ákvörðunina að gefa ekki út kvóta.

Polar Ammassak var eitt fjögurra skipa sem í síðustu viku leituðu að loðnu í kringum Ísland. Bráðabirgðaniðurstöður þeirrar leitar sýndu aðeins 2/3 hluta þeirrar loðnu sem sást í leitarleiðangri í fyrrahaust.

Mest mældist af loðnu úti fyrir Austfjörðum og í þessari viku stendur til að fara betur yfir hvað er þar á ferðinni. „Þetta er afmarkað verkefni þar sem við ætlum okkur að fá endurtekna og áreiðanlegri mælingu á því sem komið er austur fyrir land. Það tekur einhverja daga.

Það er alltaf óvissa í öllum mælingum. Í síðustu viku mældum við með göngustefnunni, færðum okkur suður á bóginn með torfunum. Að þessu sinni ætlum við að mæla á móti göngunni og þéttar til að fá áreiðanlegri gögn. Þetta snýst ekki um efasemdir um fyrra mat heldur hjálpar að fá meiri vissu,“ segir Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar.

Þetta þýðir að skipin munu sigla til suðurs og byrja leitina úti fyrir sunnanverðum Austfjörðum en sigla til norðurs. Á Guðmundi er þó að heyra að hann eigi síður von á breytingum á ráðgjöf um að ekki verði gefinn út veiðikvóti. Mælingin í haust hafi verið yfirgripsmikil og þétt.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er síðasta skipið úr leitinni í síðustu viku en það er að ljúka leit sinni úti fyrir Vestfjörðum. Guðmundur segir að helst sé von á að ganga við norðvestanvert landið þegar líður á febrúar geti einhverju breytt. Svæðið verður vaktað á vegum stofnunarinnar en engin ákvörðun liggur fyrir um frekari leit.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.