Síldarvinnslan áréttar mikilvægi sóttvarna
Síldarvinnslan sendi nýlega áminningu um mikilvægi sóttvarna á allar starfsstöðvar og skip fyrirtækisins.„Covid-19 faraldurinn er á mikilli uppleið á ný, sem hefur orðið til þess að enn á ný hefur verið gripið til sóttvarnaraðgerða af hálfu stjórnvalda. Því er skynsamlegt að gæta áfram varúðar og mælst er til þess að hugað sé að persónulegum smitvörnum til að koma í veg fyrir smit og veikindi,“ segir á vefsíðu Síldarvinnslunnar. „Rétt er að benda á að bólusettir geta borið veiruna og smitað aðra þótt þeir veikist ekki sjálfir.“
Þá vill Síldarvinnslan einnig fara þess á leit að fólk heimsæki alls ekki starfsstöðvar fyrirtækisins nema brýna nauðsyn beri til og hafi samband áður en komið er í heimsókn.
„Ef smit kemur upp getur það haft veruleg óþægindi í för með sér fyrir viðkomandi, aðstandendur og vinnufélaga, auk þess sem raunveruleg hætta er á að það muni hafa áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Það er því allra hagur að fara áfram varlega og gera það sem hægt er til að lágmarka hættuna á smiti,“ segir einnig.
Helstu smitvarnir eru að þvo hendur reglulega með sápu og vatni, minnst 20 sekúndur í hvert skipti. Nota áfram spritt fyrir og eftir snertingu við fleti sem margir koma við (t.d. í verslunum og eins á vinnustaðnum).
Nota grímu í verslunum og öðrum stöðum þar sem ekki er hægt að halda fjarlægðarmörk. Takmarka áfram náin samskipti við aðra en sína nánustu, t.d. handabönd og faðmlög.