Síldarvinnslan hættir bolfiskvinnslu á Seyðisfirði
Síldarvinnslan hefur tilkynnt að stefnt sé að því að loka bolfisksvinnslu fyrirtækisins á Seyðisfirði þann 30. nóvember næstkomandi. Ríflega 30 starfsmenn eru þar. Hluta þeirra verður boðin vinna á öðrum starfsstöðvum. Skipverjar á togaranum Gullveri halda vinnunni en munu landa víðar en á Seyðisfirði. Fiskimjölsverksmiðjan verður rekin áfram.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að samráðsferli samráðsferli við starfsfólk og forystufólk í sveitarfélaginu hefjist í framhaldinu með það að markmiði að milda áhrifin á nærsamfélagið og finna leiðir til að auðvelda fólki að vinna sem best úr erfiðum aðstæðum sem upp kunna að koma í kjölfarið.
Komið að dýrri endurnýjun
„Rekstrarumhverfi bolfiskvinnslunnar hefur breyst hratt á undanförnum árum. Fjölmargir kostnaðarliðir hafa hækkað umtalsvert, öll fjármögnun er orðin dýrari og þorskheimildir hafa dregist saman.
Þar að auki er bolfiskvinnslan á Seyðisfirði komin til ára sinna og ljóst að ráðast þarf í miklar framkvæmdir og fjárfestingu til að hún verði samkeppnishæf við fullkomnustu bolfiskhúsin í dag, þar sem tækniþróun hefur verið ör. Sá kostnaður hlypi á hundruðum milljóna króna og ljóst að jafn lítil starfseining stæði ekki undir slíku.
Síldarvinnslan fjárfesti nýlega í öflugum fiskvinnsluhúsum í Grindavík til að mæta kröfum um aukna sjálfvirkni, betri nýtingu afurða og auka sveigjanleika í framleiðslu. Til að standa undir slíkum kröfum hefur þróunin undanfarin ár verið í átt að stærri framleiðslueiningum með fjölbreyttari framleiðslu.
Hefur áhrif á 30 starfsmenn
Í bolfiskvinnslunni á Seyðisfirði starfa 33 starfsmenn og mun þessi ákvörðun hafa áhrif á 30 þeirra. Ljóst er að þessi áform eru ekki léttvæg með hagsmuni starfsmanna og nærsamfélagsins í huga. Munu stjórnendur Síldarvinnslunnar því setjast niður með hagaðilum, fulltrúum launafólks og sveitarstjórnarfólki á svæðinu til að leita leiða til að milda áhrifin.
Hluta starfsfólks mun standa til boða vinna á öðrum starfstöðvum félagsins, en félagið rekur fiskimjölsverksmiðju á Seyðisfirði, uppsjávarvinnslu og fiskimjölsverksmiðju í Neskaupstað auk bolfiskvinnslu í Grindavík. Engum skipverja á togaranum Gullveri verður sagt upp vegna þessara breytinga, en ljóst er að löndunarhöfnum mun fjölga.
Stjórnendur Síldarvinnslunnar munu einnig óska eftir samtali við heimamenn með það fyrir augum að finna mótvægisaðgerðir sem styrkt gætu Seyðisfjörð til lengri tíma, þrátt fyrir brotthvarf bolfiskvinnslunnar. Verður þar á meðal annars horft til tækifæra og fjárfestinga í atvinnuuppbyggingu á svæðinu, svo sem í ferðaþjónustu, fiskeldi eða öðrum hugmyndum sem heimafólk hefur um framtíðaruppbyggingu. Markmiðið með þeirri vinnu er að fjárfesta í sjálfbærum verkefnum sem skila sér til langs tíma á svæðinu og skapa heilsársstörf.“
Síldarvinnslan eignaðist bolfiskvinnsluna á Seyðisfirði og togarann er hún keypti öll hlutabréf í Gullbergi 1. október árið 2014.