Sjö Austfirðingar á framboðslista Viðreisnar

Heiða Ingimarsdóttir, upplýsingafulltrúi Múlaþings, er efst þeirra sjö Austfirðinga sem sitja á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi kosningar en hún er í öðru sæti. Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri leiðir listann.

Framboðslistinn var samþykktur á fundi landshlutaráðs flokksins í dag.

„Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt og þann stuðning sem ég hef fengið frá fólki hvaðan af úr kjördæminu. Þetta er gríðarlega öflugur listi og ég er spenntur fyrir því að heyja þessa kosningabaráttu.

Sérstaklega fyrir þau sem eru að kaupa sér sitt fyrsta húsnæði, stofna fjölskyldu og jafnvel fyrirtæki. Fólkið sem vill skapa verðmæti fyrir sig og sitt nærsamfélag. Ég vil beita mér fyrir þennan hóp,“ er haft eftir Ingvari í tilkynningu.

„Mér finnst oft gleymast að fólk hefur líka möguleika á að kjósa með fótunum og það þekkja eflaust allir ungt vel menntað fólk sem hefur ílengst erlendis eftir nám einfaldlega vegna þess að þeim finnst ekki vænlegur kostur að flytja heim, meðal annars vegna hárra vaxta og verðbólgu. Það er staða sem við megum ekki sætta okkur við.“

Framboðslisti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi í heild sinni:


1. Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari, Akureyri
2. Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga og kynningarmála, Egilsstaðir
3. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari, Akureyri
4. Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar, Hrísey
5. Hjálmar Pálsson, sölustjóri Hnýfill reykhús/fiskvinnsla, Akureyri
6. Arna Garðarsdóttir, verkefnastjóri, Akureyri
7. Páll Baldursson, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Egilsstaðir
8. Dusanka Kotaras, matráður Giljaskóla, Akureyri
9. Davíð Brynjar Sigurjónsson, kennari, Eskifirði
10. Rut Jónsdóttir, forstöðumaður umhverfis- og úrgangsmála, Akureyri
11. Eyþór Möller Árnason, samskiptafulltrúi, Grenivík
12. Urður Arna Ómarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Seyðisfjarðarskóla, Seyðisfjörður
13. Ari Erlingur Arason, söngvari, Húsavík
14. Halla Rut Ákadóttir, háskólanemi, Akureyri
15. Björn Grétar Baldursson, flugumferðarstjóri, Akureyri
16. Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, þroskaþjálfi og stjórnsýslufræðingur, Reyðarfjörður
17. Valtýr Þór Hreiðarsson, rekstrarhagfræðingur, Akureyri
18. Draumey Ósk Ómarsdóttir, stuðningur á leikskóla og háskólanemi, Reykjavík
19. Guðmundur Aðalsteinsson, skógarbóndi, Egilsstöðum
20. Ólöf Yrr Atladóttir, framkvæmdastjóri, Siglufjörður

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.