Sjö Austfirðingar á lista Framsóknarflokksins
Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, er efst Austfirðinga á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Hún skipar þriðja sætið. Ingibjörg Isaksen þingmaður leiðir listann.Listinn var samþykktur á kjördæmisþingi sem haldið var í Mývatnssveit í dag.
„Ég er stolt af því að fá að leiða þennan öfluga lista okkar Framsóknarfólks í kjördæminu. Við byggjum á góðri reynslu, dýrmætum mannauð og breiðri þekkingu á kjördæminu öllu,“ er haft eftir Ingibjörgu í tilkynningu.
„Við höfum átt í góðu samtali við fólkið í kjördæminu og göngum full tilhlökkunar til samtals við kjósendur, enda eru tækifærin mörg og fjölbreytt. Við viljum halda áfram að efla heilbrigðisþjónustu um land allt, vinna að orkuöryggi, húsnæðismálum og ekki síst að vinna að lækkun vaxta og verðbólgu fyrir fólkið í landinu. Við erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur í flóknu samstarfi á síðustu árum og hlökkum til samtalsins næstu vikna“.
Listi Framsóknar í Norðausturkjördæmi í heild sinni:
1. Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður, Akureyri
2. Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, Grýtubakkahreppi
3. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, Múlaþingi
4. Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar, Akureyri
5. Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi, Fjarðabyggð
6. Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi, Norðurþing
7. Ásdís Helga Bjarnadóttir, yfirverkefnastjóri, Múlaþingi
8. Jón K. Ólafsson, forstöðumaður, Fjallabyggð
9. Eiður Pétursson, vélfræðingur, Norðurþingi
10. Halldóra Magnúsdóttir, kennari, Eyjafjarðarsveit
11. Elís Pétur Elísson, framkvæmdastjóri, Fjarðarbyggð
12. Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, starfsmaður á hjúkrunarheimili, Vopnafirði
13. Eggert Stefánsson, bóndi, Langanesbyggð
14. Patrycja Maria Reimus, námsráðgjafi, Þingeyjarsveit
15. Halldóra Hauksdóttir, lögmaður, Akureyri
16. Monika Margrét Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri, Dalvíkurbyggð
17. Snæbjörn Sigurðsson, verkefnastjóri, Akureyri
18. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, ritari, Múlaþingi
19. Egill Olgeirsson, ellilífeyrisþegi, Norðurþingi
20. Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, Fjarðarbyggð