Sjöunda smitið staðfest
Eitt nýtt covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi. Staðfest smit eru því orðin sjö talsins.Í sóttkví eru 204, fjórum fleiri en í gær. Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi segir að von sé á þeim fækki nokkuð á morgun því margir þeirra sem kom heim eftir dvöl erlendis séu að ljúka sóttkví sinni.
Allir hinna smituðu eru búsettir á Fljótsdalshéraði.