Óskar Borg: Alcoa einokar ekki flugsætin heldur fjölgar þeim

oskar_borg_flugmal_web.jpgÓskar Borg, innkaupastjóri Alcoa Fjarðaáls, segir skipta töluvert miklu fyrir fyrirtækið að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað. Hann segir samninga Alcoa við Flugfélag Íslands hafa aukið framboð á flugsætum milli Egilsstaða og Reykjavíkur. Rangt sé að fyrirtækið einoki bestu sætin.

 

„Það eru um 22 þúsund flugferðir farnar á vegum Fjarðaáls á hverju ári. Við höfum ekki einokað sæti heldur fjölgað þeim. Um helmingur ferða okkar er á dýrum fargjöldum“ sagði Óskar á ráðstefnu um innlandsflug sem haldin var á Egilsstöðum fyrir skemmstu.

Hann segir núverandi stöðu flugvallarins skipta máli fyrir greiðar samgöngur. „Höfuðborg á flugvallar er bara þorp. Við viljum geta komist til borgarinnar að morgni dags og til baka um kvöldið. Menn hafa um sex og hálfan tíma milli fluga og reyna að afgreiða nokkur erindi í hverri ferð því flugið er dýrt. Tíminn sem við hefðum myndi styttast niður í fjóra tíma ef völlurinn væri í Keflavík. Það er ekki nóg.“

Óskar segir að erlendir gestir sem heimsæki fyrirtækið séu almennt ánægðir með íslenska samgöngukerfið, utan eins staðar á Austurlandi. 

„Við fáum til okkar 20-30 manns á viku, hvaðanæva úr heiminum. Þeir eru ánægðir með hversu smurt samgöngukerfi okkar er smurt, fyrir utan Oddskarðsgöngin. Það kemur ekkert í staðinn fyrir flugið. Það er hryggjarstykkið í almenningssamgöngum á landsbyggðinni.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.