Skoða að skipta upp vinnu við Gilsárbrú

Vegagerðin skoðar nú hvernig hægt sé að endurhugsa útboð á nýrri brú yfir Gilsá á Völlum. Ekkert tilboð barst í verkið þegar það var upphaflega boðið út í júlí.

Gilsárbrúin var meðal þeirra fimm verka á Austurlandi sem Vegagerðin bauð út í júlí. Tilboð bárust í hin verkin fjögur.

Sveinn Sveinsson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi, segir til skoðunar að skipta upp útboðinu, að bjóða sér út efni og smíði stálvirkis brúarinnar annars vegar, sem yrði þá afhent Vegagerðinni sem síðan skilaði því áfram til þess verktaka sem byði best í byggingu brúarinnar. Hann segir málið skýrast á næstu dögum.

Brúin yfir Gilsá, sem skilur að Velli og Skriðdal, er einbreið og við hana vinkilbeygja. Til stendur að breikka brúna og endurbyggja veginn sem liggur að henni. Við það færist vegurinn aðeins ofar þannig að beygjan verður aflíðandi svo hámarkshraði á svæðinu verður 90 km/klst.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.