Skörp hækkun á bréfum Síldarvinnslunnar
Gengi hlutabréfa í Síldarvinnslunni hefur hækkað um tæp 10% það sem af er degi. Veglegur loðnukvóti fyrir næstu vertíð er líkleg skýring.Hafrannsóknastofnun lagði í morgun til að loðnukvóti næsta árs verði rúm 900.000 tonn. Kvótinn hefur ekki verið stærri frá árinu 2003.
Bréf í sjávarútvegsfyrirtækjum ruku upp í Kauphöllinni í morgun eftir tíðindin. Hæst fóru bréf Síldarvinnslunnar í 85 kr. á ellefta tímanum í morgun, sem er tæplega 10% hækkun síðan í upphafi dags. Hækkunin gekk lítillega í síðustu viðskiptum fyrir hádegi en hækkunin er engu að síður tæp 8%.
Gengi í Brimi, sem rekur loðnuvinnslu á Vopnafirði, hafa hækkað um 10,6% það sem af er degi.