Snjóflóðavarnir boðnar út fljótlega
Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt 350 milljóna króna fjárveitingu úr Ofanflóðasjóði til að byggja upp snjóflóðavarnagarða ofan við Neskaupstað. Verkið á bjóða út strax.
Bæjaryfirvöld í Fjarðbyggð hafa seinustu vikur þrýst á um að ráðist verði í framkvæmdirnar í Neskaupstað. Til þess hafa þau hlotið stuðnings þingmanna Norðausturkjördæmis sem tóku málið upp á þingi.
Framkvæmdunum var frestað í fyrra vegna tilmála Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um samdrátt ríkisfjármála. Upphaflega átti að fresta framkvæmdunum um fjögur ár.
Eignir Ofanflóðasjóðs eru metnar á sjö milljarða króna sem bera umtalsverða vexti. Gagnrýnt hefur verið að þeir safnist upp í stað þess að nýta þá til atvinnusköpunar.