Sorphirða í Múlaþingi að komast á rétt ról
Sorphirða í sveitarfélaginu er smám saman að komast á rétt ról. Kraftur hefur verið lagður í það síðustu vikur að vinna upp þær tafir sem hrönnuðust upp í lok síðasta árs.Samkvæmt upplýsingum frá Múlaþingi var á verkfundi með sorphirðuverktakanum, Kubbi, í byrjun janúar, lagt upp með að sorphirða færi fram samkvæmt útgefnum sorphirðudagatölum fyrir lok janúar. Í svari Múlaþing segir að Kubbur hafi Kubbur hafi unnið gott starf við að vinna upp tafirnar.
Það er að takast með nokkrum undantekningum. Á miðvikudag átti að hirða pappa og plast á Jökuldal en verður gert í lok næstu viku. Flokkarnir voru hirtir þar síðast þann 27. desember síðastliðinn.
Eins er til skoðunar að seinka hirðu á sömu flokkum í Fellum og Fljótsdal um tvær vikur frá næstu ferð, sem ætti að vera 29. janúar. Ástæðan er að pappír og plast voru sótt þar 14. janúar, en samkvæmt plani eiga almennt að líða fjórar vikur á milli ferða.
Pappi og plast yrðu þá hirt í vikunni 10. – 14. febrúar í staðinn. Hirða þessi yrði þá komin á áætlun samkvæm dagatali frá og með 12. mars.
Í þessari viku fóru starfsmenn Kubbs tvær ferðar í Eiða- og Hjaltastaðaþinghár. Allir sorpflokkarnir fjórir voru sóttir, en það var síðasta svæðið sem beðið hafði lengi. Pappír og plast höfðu ekki verið tekin þar síðan í lok október.
Í svari Múlaþings kemur einnig fram að í sorphirðuútboði síðasta sumar hafi þess verið krafist að sorphirðubílar væru útbúnir ökuritum sem gætu sýnt akstursferil þeirra. Slíkt auðveldi eftirlit með sorphirðu, til dæmis þegar upp koma ábendingar að sorp hafi ekki verið tekið frá tilteknu heimili.