Séra Gunnlaugur og Katrín Ásgrímsdóttir kjörin á Kirkjuþing
Séra Gunnlaugur Stefánsson, prestur í Heydölum í Breiðdal, verður fulltrúi vígðra á Kirkjuþingi 2010-2014. Katrín Ásgrímsdóttir af Fljótsdalshéraði verður fulltrúi leikmanna.
Kjörið var staðfest í dag. Á kirkjuþingi sitja 27 fulltrúar og jafnmargir til vara. Í hópi vígðra eru 9 karlar (75%) og 3 konur (25%). Í hópi leikmanna eru 9 karlar (53%) og 8 konur (47%). Kjörsókn var 46% meðal leikmanna og 83% meðal vígðra.
Eftirtaldir voru kjörnir á Austurlandi sem nefnist á fagmáli 8. kjördæmi, til setu á kirkjuþingi næsta kjörtímabil
Vígðir:
Gunnlaugur S Stefánsson.
Til vara:
Sjöfn Jóhannesdóttir.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir.
Leikmenn:
Katrín Ásgrímsdóttir
Til vara:
Georg Friðrik Kemp Halldórsson.
Ólafur Björgvin Valgeirsson.