Stefán Grímur áfram oddviti
Stefán Grímur Rafnsson verður áfram oddviti Vopnafjarðarhrepps. Frá þessu var gengið formlega í gær á sveitarstjórnarfundi þar sem nýr meirihluti tók við völdum.Leiðtogar Betra Sigtúns og K-lista félagshyggju höfðu skipt oddvitasætinu með sér á milli ára en það var í höndum Sigtúnslistans þegar meirihlutinn strax. Í raun er því engin breyting á oddvita.
Varaoddvitinn verður hins vegar Bárður Jónasson af B-lista Framsóknarmanna og óháðra. Unnur Ósk Unnsteinsdóttir frá Betra Sigtúni verður varaoddviti.
Tveir fulltrúar minnihluta K-lista sátu hjá við afgreiðsluna í gær.
Gamli meirihlutinn sprakk fyrir tveimur vikum vegna ágreinings um framtíð sveitarstjórans Ólafs Áka Ragnarssonar. K-listinn vildi að Ólafur hætti eftir samstarfsörðugleika og trúnaðarbrest.
Betra Sigtún og Framsóknarmenn töldu ekki rétt að skipta um sveitarstjóra hálfu ári fyrir lok kjörtímabils. Viðræður þeirra á milli gengu vel og var nýr meirihluti tilbúinn skömmu eftir að sá gamli leið undir lok.