Stefán Bogi sigraði í prófkjöri framsóknarmanna á Fljótsdalshéraði
Stefán Bogi Sveinsson sigraði í prófkjöri framsókanarmanna á Fljótsdalshéraði. Stefán hlaut um 81% gildra atkvæða í prófkjörinu í fyrsta sætið.Stefán, sem var einn þriggja sem gáfu kost á sér í efsta sætið, hlaut 244 atkvæði í fyrsta sætið.
343 framsóknarmenn tóku þátt í prófkjörinu en gild atkvæði voru 300.
Ellefu einstaklingar gáfu kost á sér í prófkjörinu, fjórar konur og sjö karlar.
Úrslit urðu annars sem hér segir.
2. sæti Eyrún Arnardóttir 197 atkvæði í fyrsta til annað sæti. 66%
3. sæti Páll Sigvaldason 121 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti. 40%
4. sæti Gunnhildur Ingvarsdóttir 152 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti. 51%
5. sæti Jónas Guðmundsson 199 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti. 66%
6. sæti Helga Þórarinsdóttir 186 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti. 62%
7. sæti Þórey Birna Jónsdóttir 244 atkvæði í fyrsta til sjöunda sæti. 81%