Taka tilboði Eflu í brúarhönnun á Axarvegi

Vegagerðin hefur ákveðið að taka tilboði verkfræðistofunnar Eflu í hönnun brúa á nýjum vegi yfir Öxi. Tilboðið var langt undir kostnaðarverði. Hönnun vegarins er að mestu leyti lokið.

Vegagerðin bauð í desember út hönnun fjögurra brúa á veginum, auk gerðar útboðsganga fyrir þær. Um er að ræða brýrnar um Innri-Yxnagilsá, Merkjalæk og tvær yfir Berufjarðará.

Kostnaðarmat var upp á 135,1 milljón króna. Fimm tilboð bárust og voru þau öll vel undir kostnaðaráætlun, það hæsta 87% af áætluninni. Efla bauð 48,2 milljónir eða 35,6%.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur verið ákveðið að taka tilboði Eflu. Aðrir bjóðendur hafa tíu daga frest til að leggja fram athugasemdir. Frestur til þess rennur út í þessari viku. Gert er ráð fyrir að hönnuninni verði lokið eftir slétt ár.

Í tillögu þáverandi innviðaráðherra að samgönguáætlun 2024-2028 eru 380 milljónir ætlaðar árið 2027 til að hefja framkvæmdir við nýjan Axarveg. Þar til annað er ákveðið er unnið eftir áætluninni sem enn er ósamþykkt af Alþingi. Þungi framkvæmda við veginum var árin á eftir.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er að mestu búið að hanna veginn sjálfan. Verið er að fínpússa smáatriði sem snúa að stærð og staðsetningu ræsa. Hugsanlega þarf þó að aðlaga veghönnunina að brúarhönnuninni ef við hana kemur í ljós slík þörf.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar